Hvernig virkar þetta?
Það kostar peninga að hafa stóran lager af vörum, í staðinn fyrir að hafa allar vörur alltaf til á lager ákváðum við að fara frekar þá leið að panta af og til yfir árið og bjóða viðskiptavinum okkar upp á góðan afslátt af vörunum frá þeim framleiðendum sem við pöntum frá í hvert skipti. Með þessu getum við boðið upp á mun meiri úrval af vörum á mun betri verði. Eins er með vörur sem við framleiðum sjálf, þegar tilboð eru á þeim þá framleiðum við þær sem ekki eru til á lagar eftir að tilboði líkur. Með þessu náum við auka vöruúrval okkar til muna og viðskiptavinir okkar njóta góðs af í lægra verði. Við eigum þó stundum eitthvað á lager af einstaka vörum og sendum við þær um leið og pöntun berst til okkur.
Svona virkar þetta:
- Við setjum tilboð í gang (gildir í ca 5-7 daga)
- Afsáttur frá 10-30%
- Þú pantar og gengur frá greiðslu.
- Tilboði líkur - við sendum pöntun til framleiðenda ( tekur um 7-10 daga að koma til landsins)
- Við sendum þér strax þær vörur sem við eigum á lager
- Fáum sendingu og sendum þér vörurnar, eða þú sækir til okkar.
- Við miðum við að afhenda vörur 10-14 dögum eftir að tilboði líkur, þó getur orðið seinkun á því ef pöntun er lengur að berast okkur af ófyrirsjáanlegum ástæðum.
- Verði verulegur dráttur á sendingu látum við þig vita.
- Sumar vörur þurfa að ná lágmarkssölu til að þær verði pantaðar til að koma í veg fyrir að of stór lager myndist hjá okkur af einstaka vörum.
- Ef ekki næst lágmarksfjöldi kaupenda til að tilboðið verði virkt endurgreiðum við greiddar pantanir á tiltekinni vöru.
- Að öðru leiti gilda aðrir skilmálar Pollýönnu.is sjá hér: http://www.pollyanna.is/pages/skilmalar
Við hvetjum þig til að nýta þér þessi tilboð og fá vörur á góðu verði. Ef einhverjar spurning þá endilega hafðu samband í skilaboðum á Facebook síðunni okkar eða í tölvupósti pollyanna@pollyanna.is
Vörur hjá Pollyanna.is eru flestar frá Evrópu, Bandaríkjunum eða Cananda, við seljum ekki vörur frá Alixpress eða álíka síðum. Stefna okkar er að selja vandaðarvörur á sanngjörnu verði