Kertin eru framleidd samkvæmt pöntunum en ekki alltaf til á lager.
Falleg aðventukerti með gamladagsmyndum á ásamt jólavísnunum "Við kveikjum einu kerti á". Myndin sem er pappírshólkur brennur ekki með kertinu heldur verður eftir sem falleg lukt sem lýsist upp þegar kveikt er á því. Kertin koma í góðum kassa til að geyma í milli ára.
Kertið er um 15 cm hátt og 6 cm í þvermál. Brennslutími er um 40 klst.
Hægt er að eiga kertin á milli ára, með því að brenna það niður um ca. helming og setja síðan 2 cm lag af hráum hrísgrjónum ofan í það og þar ofan á sprittkerti. Setjið aldrei sprittkerti beint ofan á kertið í luktinni þar sem það getur hallað og loginn farið utan í pappírinn í luktinni.
Ath. Gætið ávallt fyllstu varúðar þegar kveikt er á kerti. Skiljið aldrei logandi kerti eftir án eftirlits.