Ljósmyndaplatti sem tilvalið er að setja fermingarmyndina á og hafa á t.d. gjafaborðinu. Plattinn er viðplatti með viðrönd meðfram myndinni með stærð 18x13 sm.
Fermingarmyndin sómir sér líka vel á plötunni og afi og amma yrðu nú glöð að fá mynd af barnabörnunum sínum að gjöf.
Einnig er hægt að setja hvaða texta sem er á plötuna og mynd með, möguleikarnir eru óteljandi.
Þú sendir okkur ljósmynd í tölvupósti á pollyanna@pollyanna.is og við setjum myndina á fyrir þig.
Við mælum með að myndin sé í góðum gæðum til að hún komi sem best út. Ef okkur finnst myndin ekki nægilega góð látum við vita og þú getur sent okkur nýja mynd.