Hver elskar ekki Pöndur, þessi er yndislega mjúk og hlý og er frábær vinur sem má setja í örbylgjuofn í um 2 mín ( fer eftir örbylgjuofnum sjá leiðbeiningar) og hita eins og hitapoka. Hhún er frábær næturvinir barnanna á köldum vetrarkvöldum, en í henni er dauf lavenderlykt sem hefur róandi áhrif fyrir svefninn.
Börnin ættu að sofa vært með þessum vini hjá sér.
Mömmur og pabbar mega líka alveg fá hana lánaða og hlýja sér þegar kalt er úti ;-)
Panda er fyltur með hreinsuðum hrísgrjónum og lavenderjurt.
Hæð um 40 cm.